Runólfur Þórhallsson sem sinnt hefur starfi aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur tekið við af Víði Reynissyni sem sviðsstjóri almannavarna á meðan Víðir er í leyfi vegna framboðs til alþingiskosninga.
Þetta staðfestir Runólfur við mbl.is.
Finnbogi Jónasson tekur við af Runólfi sem aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra.