Umferðaróhapp varð við Gullinbrú upp úr klukkan hálftvö í dag sem leiddi til nokkurra umferðartafa.
Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki nánari upplýsingar um það sem gerðist eða hvort einhver hafi verið fluttur á slysadeild en búið er fjarlægja ökutæki af vettvangi.
Tilkynnt var um óhappið klukkan 13.38.