Tilkynning barst um vélsleðaslys á Langjökli laust upp úr klukkan 16. Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út og eru á leið slysstað.
„Þetta eru meira eða minna allar björgunarsveitir vestan Þjórsár og vestan Hellisheiðar,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar, um þær sveitir sem hafa verið kallaðar út.
Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar að svo stöddu.