Þyrla Landhelgisgæslunnar flytur þessa stundina tvo menn frá Langjökli á Landspítala.
„Þeim verður komið undir læknishendur hér í borginni,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Ásgeir segir þyrluna hafa lent við Skálpanes en hafði ekki upplýsingar um líðan mannanna tveggja.
Tilkynning barst um vélsleðaslys á Langjökli laust upp úr klukkan 16. Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út á slysstað.