Vilja að gjaldið taki mið af nikótínstyrk

Samkvæmt breytingatillögunni myndi dolla af hinu vinsæla Velo Freeze 4 …
Samkvæmt breytingatillögunni myndi dolla af hinu vinsæla Velo Freeze 4 hækka um 180 kr., frekar en 420 kr eins og fyrirhugað er í frumvarpinu. mbli.is/Eggert Jóhannesson

Efnahags– og viðskiptanefnd leggur til að breytingar verði gerðar á fyrirhuguðu gjaldi sem sett verður á nikótínvörur með nýju frumvarpi. Upprunalega tók gjaldið aðeins mið af þyngd vörunnar, en nefndin leggur til að gjaldið verði þrepaskipt og taki einnig mið af nikótínmagni í vörunni.

Í október boðaði Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra frumvarp í Samráðsgátt sem felur m.a. í sér að sérstakt gjald verði lagt á nikótínvörur, einnota rafrettur og áfyllingarvökva í rafrettur.

Um 35-40% Íslend­inga á aldr­in­um 18-24 ára neyti nikótínpúða í vör­ á hverj­um degi, samkvæmt upplýsingum frá Pró­sent.

Miðað við fyrirhugaðar breytingar myndi verð á nikótínpúðum hækka umtalsvert. Hækkunin myndi nema 30 krónur fyrir hvert gramm af heildarþyngd vörunnar en venjuleg dolla af nikótínpúðum vegur um 14 grömm.

Samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra myndi verð á nikótínpúðadollunni hækka um 420 krónur, en nú hefur efnahags og viðskiptanefnd lagt fram breytingatillögur þar sem stungið er upp á annars konar gjaldtöku.

Diljá Mist Einarsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Diljá Mist Einarsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. mbl.is/Hákon

Gjaldtakan gæti hvatt fólk til að velja sterkari vörur

Frumvarpið hefur m.a. verið gagnrýnt af landlækni, þar sem gjaldtakan tekur aðeins mið af þyngd vöru en ekki heildarstyrk nikótíns í vöru.

„Fyrirhuguð gjaldtaka kynni að hafa þær afleiðingar að framleiðendur og neytendur þessara vara myndu leitast við að skipta yfir í vörur sem innihalda hærra magn af nikótíni en það færi gegn lýðheilsumarkmiðum,“ segir í nefndarálitinu.

Í þeirri gagnrýni sem barst nefndinni er tekið fram að í Danmörku sé farin sú leið að þrepaskipta gjaldi á nikótín eftir nikótínstyrk.

Í umsögn embættis landlæknis kemur fram að gjaldtaka sem miðast við nikótínmagn í vöru kynni að virka sem hvati til að minnka styrkleika nikótíns í vörunum almennt.

Freeze hækki um 168 kr. frekar en 420 kr.

Meirihluti í nefndinni telur því að gjaldtakan taki ekki mið af skaðleika varanna, og bendir á að rafrettur teljist töluvert skaðlegri en nikótínpúðar. Þess vegna leggur nefndin til að gjaldtaka á nikótín taki mið af styrk í vöru frekar en þyngd og verði skipt í þrep eftir magni þess.

Breytingarnar fela í sér hærri gjaldtöku á rafrettuvökvum heldur en á einnota rafrettum eða nikótínpúðum.

  • Nikótínvörur með styrkinn 1-8 mg/g myndu vera skattlagðir um 8 kr. á hvert gramm vöru.
  • Nikótínvörur með styrkinn 8,1-12 mg/g yrðu skattlagðir um 12 kr. á hvert gramm vöru.
  • Nikótínvörur með styrkinn 12,1-16 mg/g: 15 kr. á hvert gramm vöru.
  • Nikótínvörur með styrkinn 16,1 til og með 20 mg/g: 20 kr. á hvert gramm vöru.

Til samanburðar myndi dolla af vinsælu nikótínpúðategundinni Velo Freeze 4 (15mg/g) hækka í verði um 180 kr., frekar en 300 kr, (hver púði vegur 0,7g og inniheldur 11g af nikótíni).

Vilja framkvæma lýðheilsumat

Auk þessa myndu vökvar í einnota rafrettur og vökvar til áfyllingar fyrir rafrettur sem innihalda ekki nikótín hækka um 40 kr. á hvern millilítra vöru. Vökvar í einnota rafrettur og vökvar til áfyllingar fyrir rafrettur þar sem styrkur nikótíns er 12 mg/ml eða lægra myndu hækka um 40 kr. á hvern millilítra og vökvar þar sem styrkur nikótíns yrði 12,1 mg/ml eða hærra hækkuðu þá um 60 kr. á hvern millilítra.

„Þá beinir meirihlutinn því til stjórnvalda að framkvæma lýðheilsumat á áhrifum af gjaldtöku á nikótín og eftir atvikum endurskoða gjaldtökuna eða bregðast við með öðrum viðeigandi hætti ef niðurstöður gefa tilefni til þess,“ segir í nefndarálitinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert