Litlar tilbreytingar næstu daga

Veðurspá dagsins.
Veðurspá dagsins. Skjáskot af Veðurstofu Íslands

Í dag er útlit fyrir talsverðan vind með éljum norðan- og austanlands en sunnan heiða er spáð þurru veðri og yfirleitt nokkuð björtu. Svipuðu veðri er spáð á morgun og raunar næstu fjóra daga að því fram kemur í veðurspá Veðurstofunnar. 

„Það er víðáttumikil og djúp lægð yfir Skandinavíu ásamt hæð yfir Grænlandi sem beinir til okkar norðanáttinni og köldu lofti, frost verður yfirleitt á bilinu 2 til 8 stig á landinu. Þessi staða veðrakerfanna virðist eiga að haldast út miðvikudag og því horfum við fram á 4 daga af tilbreytingarlitlu veðri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert