Banna ætti eldi í opnum kvíum

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, segir að samgöngur og innviðir á Vestfjörðum séu 30-40 árum eftir á.

Hún segist vilja fylgja eftir tillögum Innviðafélags Vestfjarða um uppbyggingu innviða á Vestfjörðum til að tryggja þar blómlega byggð og öflugt atvinnulíf. Ugla játar því að Píratar séu mótfallnir fiskeldi í opnum kvíum, en það er ein stærsta atvinnugreinin á Vestfjörðum, út frá náttúruverndarsjónarmiðum.

„Við sjáum að þessir laxar úr sjókvíaeldinu koma í þær ár [laxár í Húnavatnssýslu] og valda ómældum skaða á laxastofnunum. Þá er í rauninni verið að hafa áhrif á lífsviðurværi og starfsemi annars fólks,“ segir Ugla.

Hún leggur til ákveðnar breytingar svo að meiri tekjur renni til sveitarfélaganna og nefnir sem dæmi að hluti af gistináttaskatti fari til viðkomandi sveitarfélaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert