Oddvitaviðtöl við oddvita allra framboða í Norðvesturkjördæmi birtast á mbl.is í dag, þar sem þeir eru bæði inntir eftir stöðunni í kosningabaráttunni og helstu kosningamálum, bæði sinna flokka og miðað við undirtektir kjósenda.
Þessa dagana birtast á mbl.is viðtöl við alla oddvita framboða í öllum kjördæmum landsins til Alþingiskosninga. Það eru blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, sem ræða við oddvitana 61. Þá eru birtir útdrættir úr viðtölunum á síðum Morgunblaðsins sama dag og þau birtast á mbl.is.
Þó umgjörð viðtalaraðanna séu viðtöl við oddvita flokka í kjördæmunum, þá er sú undantekning þó gerð, að þegar formaður flokks leiðir listann er næsti maður á lista tekinn tali. Ýtarlegri viðtöl við formennina eru birt í Spursmálum fram að kosningum.
Morgunblaðið ræddi við oddvita flokkanna í Safnhúsi Borgarfjarðar sem er til húsa í Borgarnesi. Ýmis mál bar á góma eins og samgöngumál, landbúnað, fiskeldi og efnahagsmál.
Hér að neðan má sjá öll viðtölin í stafrófsröð eftir listabókstaf framboða.
Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokkur
María Rut Kristinsdóttir Viðreisn
Ólafur Adolfsson Sjálfstæðisflokkur
Eyjólfur Ármannsson Flokkur fólksins
Guðmundur Hrafn Arngrímsson Sósíalistaflokkur
Eldur Smári Kristinsson Lýðræðisflokkur
Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokkur
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Píratar
Arna Lára Jónsdóttir Samfylking
Álfhildur Leifsdóttir Vinstri græn