Samkeppniseftirlitið hefur ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf þar sem vakin er athygli á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að afgreiðsla Alþingis á búvörulögum hafi verið í andstöðu við stjórnarskrá.
Undanþágurnar sem veittar voru með lögunum, og heimila kjötafurðastöðvum að sameinast og hafa tiltekið samráð sín á milli, hafa því ekki lagagildi.
Samkeppnislög gilda því fullum fetum um samstarf og samruna kjötafurðastöðva.
Þetta kemur fram í tilkynningu SKE.
„Jafnframt er vakin athygli á því samkeppnislög banna samninga og samþykktir milli fyrirtækja sem raska samkeppni, sem og samkeppnishömlur af hálfu samtaka fyrirtækja. Einnig er vakin athygli á því að tilkynna þarf Samkeppniseftirlitinu fyrirfram um samruna fyrirtækja yfir tilteknum veltumörkum. Þá leggja samkeppnislög bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann,“ segir í tilkynningunni.
Í bréfunum sem SKE hefur sent er því beint til kjötafurðastöðva að stöðva þegar í stað hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem farið getur gegn samkeppnislögum og stofnast hefur til á grundvelli umræddra undanþáguheimilda.
Þá er óskað eftir upplýsingum hvort viðkomandi fyrirtæki hafi verið skilgreint sem framleiðendafélag í skilningi búvörulaga, en samkvæmt lagabreytingunum var það forsenda þess að kjötafurðastöðvar gætu nýtt sér undanþáguheimildirnar.
Þá er lagt fyrir fyrirtækið, hafi viðkomandi kjötafurðastöð ráðist í samruna eða samstarf á grundvelli undanþáguheimildanna, að varðveita allar upplýsingar og gögn sem varpa ljósi á þá háttsemi sem í hlut á.
Er kjötafurðastöðvunum gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sem nýtast kunna við athugun á því hvernig bregðast skuli við dómi héraðsdóms.