Íslenska ríkið hafði betur gegn líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. í Hæstarétti í dag. Stendur þar með ákvörðun matvælaráðherra að fella alla starfsemi fyrirtækisins undir reglugerð um vernd dýra.
Málið var fyrst tekið fyrir í héraðsdómi í maí á þessu ári og hefur Hæstiréttur staðfest fyrri dóma héraðsdóms og Landsréttar í málinu.
Ísteka sérhæfir sig í að vinna lyfjaefni úr hryssublóði en fyrirtækið höfðaði mál gegn íslenska ríkinu í febrúar á þessu ári. Málið var höfðað vegna ákvörðunar matvælaráðherra þess eðlis að öll starfsemi félagsins sem tengdist blóðnytjum úr fylfullum hryssum skyldi falla undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.
Ákvörðun matvælaráðherra var byggð á því að reglugerð nr. 900/2022, um blóðtöku úr fylfullum hryssum, var felld úr gildi. Því ætti áðurnefnd reglugerð 460/2017 að gilda um starfsemina.
Að mati Ísteka fellur starfsemi fyrirtækisins ekki undir efnisatriði reglugerðar nr. 460/2017 og telur því að matvælaráðherra hafi tekið ákvörðun sem takmarki stjórnskipulega varin réttindi sín og gangi gegn reglum stjórnsýsluréttar.
Hæstiréttur telur Ísteka ekki hafa rökstutt það nægilega vel fyrir dómi að fyrirmæli reglugerðarinnar aftri starfsemi þess að svo stöddu.
„Sóknaraðili hefur í málatilbúnaði sínum ekki rökstutt að fyrirmæli reglugerðar nr. 460/2017 hafi haft þau áhrif að honum sé ekki unnt að halda áfram starfsemi sinni að svo stöddu. Þvert á móti liggur fyrir að umrædd breyting á stjórnvaldsfyrirmælum hefur enn sem komið er engin áhrif haft á leyfi sóknaraðila til starfseminnar,“ segir meðal annars í dómnum.
Fyrirtækinu er jafnframt gert að greiða íslenska ríkinu 500 þúsund krónur í kærumálskostnað.