Kærður fyrir að virða ekki rétt gangandi vegfarenda

Gangbraut í Vesturbæ. Mynd úr safni.
Gangbraut í Vesturbæ. Mynd úr safni. mbl.is/sisi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði í dag ökumann fyrir að virða ekki rétt gangandi vegfarenda á gangbraut við skóla í Vesturbæ Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar, þar sem segir að málið hafi verið afgreitt með vettvangsskýrslu.

Tveir kærðir fyrir of hraðan akstur

Lögreglu var einnig tilkynnt um árekstur í Breiðholtinu þar sem viðkomandi hafði stungið af. Málið er til rannsóknar.

Þá voru tveir ökumenn kærðir fyrir að hafa ekið yfir hámarkshraða í Kópavogi. Ökumennirnir voru báðir að keyra á götu þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst. Annar þeirra var á 83 km/s og hinn á 77 km/s. Málin voru afgreidd á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert