Varar við loftmengun á morgun

Aðstæður á höfuðborgarsvæðinu á morgun gætu leitt til þess að …
Aðstæður á höfuðborgarsvæðinu á morgun gætu leitt til þess að loftmengun vegna svifryks verði til staðar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Aðstæður á höfuðborgarsvæðinu á morgun gætu leitt til þess að loftmengun vegna svifryks verði til staðar en spáð er hægum vindi og þar sem úrkomulaust hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga er ekki ósennilegt að loftmengunar verði vart.

Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftmengun hjá Umhverfisstofnun, segir að vindurinn undanfarna daga hafi bjargað því að mengunin hafi verið lítil en þar sem spáð er hægum vindi á morgun gætu loftgæðin orðið verri.

„Samkvæmt veðurspánni á vindurinn að vera 2-3 m/s. Ef hann fer niður fyrir 2 m/s í áttleysu þá byggist upp loftmengun af völdum svifryks. En um leið og vindurinn er kominn í 2-3 m/s þá er rykið af færast hægt og rólega í burtu,“ segir Þorsteinn.

Líklegt að loftgæði fari yfir heilsuverndarmörk

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Bliku, vekur athygli á þessu á facebook síðu sinni en þar segir hann að það þurfi að vara við loftmengun. Hann segir að í fyrramálið sé spáð hægviðri og frosti frá 5-7 gráðum sem geri það af verkum að svifrykið safnast upp nærri yfirborði.

Afar líklegt og nær öruggt má telja að loftgæði fari yfir heilsuverndarmörk eins og þau eru skilgreind. Aðstæður eru það ákjósanlega að þetta gæti á morgun orðið verra en var verstu dagana í fyrravetur,“ segir Einar í færslu sinni á Facebook.

Þorsteinn bendir á að um tvenns konar mengun sé að ræða. Annars vegar mengun frá púströrum ökutækja sem er óháð veðri og hins vegar svifryk frá götunum.

„Reykjavíkurborg í samvinnu við Vegagerðina er alltaf að ná betri tökum á rykbindingu og hefur farið í að sprauta rykbindandi efni á helstu umferðaræðar. Það er hins vegar skammtímalausn en getur hjálpað til í tvo daga eða svo,“ segir Þorsteinn.

Nagladekk eru oftar en ekki orsök fyrir miklu svifryki. Hlutfall nagladekkja í Reykjavík er svipað og í fyrra samkvæmt talningu sem gerð var um miðjan nóvember. Tæplega þriðjungur reyndist vera á nöglum en Reykjavíkurborg mælir með góðum vetrardekkjum til að draga úr mengun, hávaða og sliti á götum.

Á vef Reykjavíkurborgar segir:

„Undanfarna daga hefur orðið vart við hækkuð svifryksgildi í borginni. Þar sem stefnir í hægan vind næstu daga hefur viðbragðsteymi borgarinnar ákveðið að rykbinda götur í nótt.“ 

Á loft­gæði.is má sjá kort yfir mæl­istaði í Reykja­vík og ann­ars staðar á land­inu.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka