„Verðbólgan er í frjálsu falli“

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Árangur skýrrar stefnu okkar birtist í lækkun vaxta nú í morgunsárið,“ segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í færslu á Facbook þar sem hann tjáir sig um þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að lækka stýrivextina bankans um 0,5 prósentustig.

Bjarni segir að lækkunin þýði 190 þúsund króna lægri greiðslubyrgði á ári fyrir heimili með 40 milljón króna lán en eftir lækkun stýrivaxtanna í morgun standa þeir 8,5% eftir að hafa verið 9,25% í meira en ár.

„Forgangsmál Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn hefur verið að stuðla að lækkun verðbólgu svo Seðlabankinn geti lækkað vexti. Það er að ganga eftir, verðbólgan er í frjálsu falli, hún er að „húrrast niður“ eins og greiningaraðilar hafa orðað það,“ segir Bjarni í færslunni.

Allir flokkar lofa lækkun vaxta

Bjarni segir að Seðlabankinn geri nú ráð fyrir mun minni verðbólgu á næstunni en áður var talið og ef haldið verði áfram á réttri leið sé vaxtalækkunin í dag aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal á nýju ári.

„Í kosningabaráttunni er karpað um ýmislegt, flest mikilvægt á sinn hátt. Það er hins vegar ótvírætt stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja að þessi þróun haldi áfram. Allir flokkar lofa lækkun vaxta en ákvörðun dagsins sýnir að það er að takast á okkar vakt,“ segir Bjarni enn fremur.

Hann segir að gæta þurfi þess að setja ekki árangurinn í uppnám með ódýrum töfralausnum, sama hvaða nafni þær séu kallaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert