Kennarar í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum, Engjaskóla í Reykjavík, Grundaskóla á Akranesi og Lindaskóla í Kópavogi hafa samþykkt að hefja verkfallsaðgerðir þann 6. janúar næstkomandi.
Verkföllin eru tímabundin og standa til 31. janúar, náist samningar ekki fyrir þann tíma.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands.
Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ), sem starfa í fyrrnefndum skólum, greiddu atkvæði um verkfallsboðunina. Atkvæðagreiðslan stóð dagana 19. nóvember – 21. nóvember 2024.
Kjörsókn var á bilinu 96 til 100 prósent. Já sögðu 98 til 100 prósent þeirra sem greiddu atkvæði.
Samtals hafa þá verið boðuð verkföll í sautján skólum, en þessa stundina eru kennarar í tíu skólum í verkföllum. Á morgun lýkur verkfallsaðgerðum í þremur grunnskólum en þann 25. nóvember hefjast verkföll í þremur öðrum grunnskólum.