Einn fluttur á slysadeild: Miklar umferðartafir

Ökumaður rafskútunnar hefur verið fluttur á slysadeild.
Ökumaður rafskútunnar hefur verið fluttur á slysadeild. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umferðarslys varð á gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar í Reykjavík í kvöld þar sem rafskúta og bíll skullu saman.

Þetta staðfestir slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Ökumaður rafskútunnar var með meðvitund er sjúkrabíl bar að garði og hefur verið fluttur til skoðunar á slysadeild.

Ekki er meira vitað um líðan ökumannsins og ekki hafa fengist frekari upplýsingar að sinni.

Miklar umferðartafir hafa hlotist af slysinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert