Él á Norður- og Austurlandi

Spáð er norðlægri átt í dag.
Spáð er norðlægri átt í dag. Kort/mbl.is

Í dag er spáð norðlægri átt, 3-10 metrum á sekúndu, en norðvestan 8-15 m/s austast fyrripart dags.

Dálítil él verða á Norður- og Austurlandi, annars bjart að mestu.

Norðaustan 5-13 m/s verða á morgun og bjart með köflum, en stöku él á víð og dreif. Bætir heldur í ofankomu norðaustanlands um kvöldið.

Frost verður á bilinu 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert