Landhelgisgæslan hefur varað sjófarendur við borgarísjaka út af Vestfjörðum. Þetta tilkynnir Lögreglan á Vestfjörðum á samfélagsmiðlum.
Að ósk lögreglunnar fór gæslan í eftirlitsflug yfir jakann í gær og annes á Vestfjörðum til að ganga úr skugga um að enginn hvítabjörn hefði tekið sér far. Engin hvítabjörn fannst.