Myndir: Hraunið komið inn á bílaplan Bláa lónsins

Hraunið er nýlega komið inn á planið við Bláa lónið.
Hraunið er nýlega komið inn á planið við Bláa lónið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hraun rennur nú alveg rétt við bílaplan Bláa lónsins og mun líklega fara yfir planið eftir skamma stund. Ekki er þó talið að hraunið muni fara inn fyrir varnargarð og að lóninu sjálfu eða orkuverinu í Svartsengi. 

Stórvirkar vinnuvélar hafa verið notaðar í nótt og morgun til að loka skörðum sem voru í varnargarðinum bæði við Bláalónsveginn og svo við bílastæðin hjá Bláa lóninu, þar sem gengið var að lóninu. 

Hraunið er alveg við bílaplanið og líklega að renna yfir …
Hraunið er alveg við bílaplanið og líklega að renna yfir það fljótlega. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnar Smári Þorvarðarson, einn umsjónarmanna varnargarðaframkvæmda á Reykjanesi og starfsmaður Verkís, segir í samtali við mbl.is að búið sé að loka skarðinu við Bláalónsveginn og að verið sé að leggja lokahönd á að loka hinu skarðinu. Hann segist fullviss um að það muni takast áður en á reyni. „Ég held að við náum þessu þannig að það ógni ekki inn fyrir,“ segir hann.

Eins og sjá má á myndunum, sem teknar voru núna rétt fyrir hádegi, er hraunið alveg við bílaplanið. Einnig má sjá að vatnslækur rennur út undir garðinum við bílastæðið. Spurður hvort hann telji að hætta sé á gufusprengingum vegna þessa segir Arnar að slíkt geti gerst, en reynslan sýni að meiri líkur séu á að vatnið gufi bara strax upp í gufubólstra.

Hraunið rennur hér yfir Bláalónsveginn meðan vinnuvélar klára að fylla …
Hraunið rennur hér yfir Bláalónsveginn meðan vinnuvélar klára að fylla í skarðið. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hraunið er rétt við bílastæði Bláalónsins. Eins og sjá má …
Hraunið er rétt við bílastæði Bláalónsins. Eins og sjá má neðarlega hægra megin á myndinni er vinna við að loka skarðinu við Bláa lónið mjög langt komin og búist er við að það klárist að fullu áður en hraunið kemur þar að. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Unnið var af fullum krafti við að fylla upp í …
Unnið var af fullum krafti við að fylla upp í skörð sem voru á varnargarðinum við Bláalónsveginn og við bílastæðin að Bláa lóninu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert