Svona verður verkfall lækna á Akureyri

Allri bráðaþjónustu verður sinnt en áhrif verkfalla verður helst á …
Allri bráðaþjónustu verður sinnt en áhrif verkfalla verður helst á valkvæða starfsemi. Ljósmynd/Sjúkrahúsið á Akureyri

Verkfallsaðgerðir munu hafa áhrif á Sjúkrahúsið á Akureyri, en félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt verkfallsboðun.

Verkfall skellur á á miðnætti aðfaranótt mánudags þann 25. nóvember, náist ekki að semja fyrir þann tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkrahúsinu á Akureyri. 

Áhrifin helst á valkvæða starfsemi

Kemur þar fram að allri bráðaþjónustu verði sinnt en áhrif verkfalla verði helst á valkvæða starfsemi, m.a. á skurðaðgerðir og dag- og göngudeildarþjónustu.

Einungis verði framkvæmdar bráðaaðgerðir á meðan á verkfalli stendur, lyfjagjöfum krabbameinssjúklinga sinnt sem og þeirri göngudeildarþjónustu sem við verður komið.

Er skjólstæðingum sjúkrahússins sem eiga bókaðan tíma í skurðaðgerð eða á dag- og göngudeild bent á að fylgjast vel með að morgni verkfallsdaga hvort verkfall sé skollið á eða sé enn í gangi, sjúklingar gætu átt von á afboðun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert