Hópur foreldra sem eiga börn í Seljaskóla hvetur skólastjórnendur til að innleiða símafrí fyrir alla nemendur skólans.
Nemendur mega nota síma í frímínútum en foreldrarnir telja það styðja betur við velferð barnanna og gefa þeim mikilvægt tækifæri til að þroska félagsfærni í frímínútum ef símafríið væri í gildi yfir allan skólatímann, að því er fram kemur í tilkynningu frá hópnum.
„Foreldrar hafa bent á margfalda símanotkun barnanna sinna á milli ára þegar þau koma upp í unglingadeild og að notkunin sé mikil á skólatíma sem dragi úr líkum á því að þau eigi í samskiptum sín á milli,“ segir í tilkynningunni.
Forsvarsmenn hópsins afhentu í dag Jóhönnu Héðinsdóttur skólastjóra undirskriftalista sem telur 259 nöfn. Verður listinn einnig afhentur fulltrúum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og kjörnum borgarfulltrúum.
„Við teljum að með símafríi muni Seljaskóli, líkt og aðrir grunnskólar sem hafa tekið upp símafrí, taka mikilvæg og nauðsynleg skref í átt að því að tryggja betri líðan og þroska barna á skólatíma og út lífið,“ segir á undirskriftalistanum.
Vilja foreldrarnir hvetja skólayfirvöld borgarinnar til að innleiða símafrí í öllum grunnskólum borgarinnar.
Rannsóknir sýna að áhugi íslenskra barna á lestri hefur hrunið frá aldamótum. Virðist áhugi nemenda á lestri fara hratt minnkandi eftir því sem skjátími eykst.
Grunnskólar í Hafnarfirði og á Akureyri hafa tekið upp símabann.
Skólastjórnendur segja breytinguna hafa gefið góða raun.