Fundu fíkniefni ætluð til sölu

Tveimur var stungið í steininn í dag, að því er …
Tveimur var stungið í steininn í dag, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í dag vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leit lögreglu fundust ætluð fíkniefni í söluumbúðum og var maðurinn vistaður í fangageymslu. Málið er í rannsókn.

Þetta segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna hennar frá 5 í morgun til 17 í dag.

Reyndist eftirlýstur í öðru máli 

Tilkynnt var um þjófnað í Vesturbænum þar sem einn var handtekinn. Við skoðun reyndist hann eftirlýstur í öðru máli og var vistaður í fangageymslu lögreglunnar.

Þá var tilkynnt um umferðarslys í Hafnarfirði þar sem ekið hafði verið á tvo kyrrstæða bíla og svo á brott. Ekki urðu slys á fólki en ökumaðurinn er ófundinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert