Sex miðahafar voru með annan vinning í EuroJackpot er dregið var í kvöld og hljóta þeir rúmar 615 milljónir króna hver.
Voru fjórir miðanna keyptir í Þýskalandi en hinir í Noregi og á Ítalíu.
Enginn hlaut fyrsta vinning í þetta sinn.
Átta miðahafar voru með þriðja vinning og hlýtur hver þeirra tæpar 43,5 milljónir króna.
Voru fjórir þeirra miða keyptir í Þýskalandi en hinir í Danmörku, Finnlandi, Hollandi og á Spáni.
Þá hlaut heppinn Íslendingur, sem var með fjórða vinning, 773.590 krónur í sinn hlut og var miðinn keyptur á lotto.is
Enginn var með allar tölur réttar og í rétti röð í Jókernum en var einn með annan vinning og fær 100.000 krónur í vinning. Var sá miði í áskrift.