Í tveggja vikna varðhald fyrir stófelldan þjófnað

Hluti af þýfinu.
Hluti af þýfinu. Ljósmynd/Lögreglan

Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu.

Í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að um sé að ræða þjófnaði á nokkur hundruð kílóum af kjötvörum, fatnaði, raftækjum o.fl., en verðmæti þess hleypur á milljónum króna.

Mikið af þýfinu fannst á dvalarstað mannsins, en nú er unnið að því að koma hlutunum aftur í réttar hendur og mun það taka einhvern tíma.

Lögreglan tekur fram að upplýsingasími lögreglu er 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert