Eldur kviknaði í bifreið í Mosfellsbæ

Einn bíll var sendur á vettvang og hefur nú verið …
Einn bíll var sendur á vettvang og hefur nú verið slökkt eldinn. mbl.is/Eyþór

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á níunda tímanum nú í kvöld vegna eldsvoða í bifreið á Vesturlandsvegi við Brúarfljót í Mosfellsbæ.

Einn slökkviliðsbíll frá starfsstöð slökkviliðsins í Mosfellsbæ var sendur á vettvang og hefur nú eldurinn verið slökktur.

Jón Kristinn Valsson, aðstoðarvarðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að engin slys hafi orðið á fólki og að upptök eldsins séu ókunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert