Ákærður fyrir stunguárás á menningarnótt

Mál piltsins verður þingfest á fimmtudag.
Mál piltsins verður þingfest á fimmtudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sextán ára piltur hefur verið ákærður fyrir stunguárás á menningarnótt sem varð stúlku að bana og særði tvö önnur ungmenni.

Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, saksóknari hjá héraðssaksóknara, staðfesti þetta í samtali við mbl.is og segir að málið verði þingfest á fimmtudag.

Rúv greindi fyrst frá.

Dagmar gat ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 

Bryndís Klara Birgisdóttir lést af sárum sínum eftir árásina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert