Íslensk kona um fertugt var sett í gæsluvarðhald á Tenerife á Spáni eftir að hún er sögð hafa veist að tengdamóður sinni og mágkonu á hótelherbergi á föstudagskvöld.
Vísir greindi fyrst frá.
Konan var í fjölskyldufríi ásamt manni sínum og minnst einu barni. Vísir hefur eftir vitni að hótelherbergið hafi verið alþakið blóði eftir árás konunnar. Þar er hún sögð hafa ráðist á mágkonu sína og tengdamóður auk þess að veitast að tengdaföður sínum.
Konan er sögð glíma við geðhvarfasýki.
Ægir Þór Eysteinsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir málið ekki hafa komið inn á borð hjá ráðuneytinu.
Mál konunnar var tekið fyrir hjá dómara í morgun. Viðurlögin við heimilisofbeldi á Spáni eru þriggja til sjö mánaða fangelsisdómur en ef hún verður ekki kærð mun hún verða flutt úr landi.