Jólagjöf ársins 2024 valin

Eflaust verða einhverjir fylgihlutir fyrir pizzagerð pakkaðir inn í desember.
Eflaust verða einhverjir fylgihlutir fyrir pizzagerð pakkaðir inn í desember. mbl.is/Colourbox

Rannsóknarsetur verslunarinnar (RSV) hefur valið jólagjöf ársins 2024. Jólagjöfin er allt fyrir pizzagerðina.

Segir í tilkynningu frá Rannsóknarsetrinu að jólagjöfin sameini fjölskylduna í samveru við gerð „föstudagspizzunnar“ og sé afar nytsamleg.

Þá einskorðast gjöfin heldur ekki við einn hlut heldur getur hver og einn sniðið hana að sínum fjárhag en hægt er að finna fylgihluti fyrir pizzagerð í öllum verðflokkum.

„Tíðarandinn virðist kalla á aukið notagildi jólagjafa og einkenndust tillögur rýnihópsins að jólagjöf ársins af auknu notagildi fyrir alla fjölskylduna, aukinni samveru og fjölbreytni í verði,“ segir í tilkynningunni.

Karlar líklegri til þess að óska sér ástar

Kemur þá fram að karlar voru tvöfalt líklegri til þess að óska sér ástar, gleði, hamingju og friðar en konur, ásamt því sem þeir voru helmingi líklegri til þess að óska sér bóka í ár.

Segir að konur vildu fremur fatnað og fylgihluti en karlar og voru auk þess líklegri til þess að óska sér raf- og heimilistækja.

RSV hef­ur valið jóla­gjöf árs­ins frá ár­inu 2006, en það árið var ávaxta- og græn­met­ispressa fyr­ir val­inu.

Jólagjöf ársins í fyrra voru samverustundir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert