Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir rekstraraðilum sem hafa áhuga á að taka að sér rekstur á 80 til 150 rýma hjúkrunarheimilum.
Um er að ræða hið minnsta þrjú ný hjúkrunarheimili sem til stendur að taki til starfa á næstu árum og verða staðsett á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.
Í tilkynningu segir að nýtt fyrirkomulag um húsnæðismál hjúkrunarheimila verði viðhaft í verkefnunum þar sem lagt er upp með að rekstraraðili hjúkrunarheimilis komi að rýni á hönnun og útfærslu á innra fyrirkomulagi heimilisins, til að tryggja gæði og hagkvæmni væntanlegrar starfsemi.
Að svo stöddu liggi ekki fyrir fjöldi rýma né nákvæm staðsetning heimilanna. Innkaupaferli um rekstur og þjónustu hvers hjúkrunarheimilis muni vinda fram í takti við framgang húsnæðismála í hverju tilfelli fyrir sig.
Þeir rekstraraðilar sem lýsa yfir áhuga á að taka þátt í uppbyggingu nýrra hjúkrunarheimila samkvæmt auglýsingu verður boðið að taka þátt í valferli Sjúkratrygginga um rekstur hvers hjúkrunarheimilis fyrir sig.