Tveggja bíla árekstur á Hellu

Hella.
Hella. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveggja bíla árekstur varð á Hellu um þrjúleytið í dag. Báðir bílarnir eru óökuhæfir eftir slysið.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi var enginn fluttur á slysadeild.

Hann hefur ekki upplýsingar um hversu margir voru í bílnum tveimur, sem voru fólksbílar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert