Útlit er fyrir norðlægari vind og kaldara veður á kjördag, 30. nóvember, en Veðurstofa Íslands spáði í gær.
„Það gæti orðið hríðarveður ef þetta gengur eftir á Austfjörðum, Austurlandi og Norðurlandi eystra. Það verður allhvöss- eða hvöss norðanátt með snjókomu, þannig að þá er ekki greiðfært fyrir fólk að fara á kjörstað í þeim landshlutum ef spáin gengur eftir,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, spurður út í kosningaveðrið.
Minni úrkoma verður á Norðvesturlandi og Vestfjörðum en þó verður éljagangur viðloðandi. Þurrt verður sunnanheiða en norðannæðingur, miðað við stöðuna eins og hún lítur út í dag. Frost verður um allt land.
Teitur segir enn vera fjóra daga í kjördag og að hlutirnir geti því breyst. Hann nefnir stöðuna á veðrakerfunum í kringum landið í þessu samhengi.
„Það sem veldur þessu er að á fimmtudag og föstudag eru átök á milli mjög ólíkra loftmassa hérna við landið. Annars vegar kemur mjög kalt loft úr norðri og svo hlýtt loft sem kemur sunnan að. Á svona skilum myndast lægðir, úrkoma og vindur,“ greinir Teitur frá.
„Þegar átökin verða svona nærri landinu verður minni fyrirvari í spánum,“ segir hann og á þar við að óvissan í spánum aukist.
„Þetta á eftir að skýrast betur þegar nær dregur og það á sérstaklega við núna,“ bætir Teitur við og nefnir að Veðurstofan reikni veðrið út frá tugum spáa sem hún greini á morgnana.
Eins og mbl.is greindi frá í gær gæti veðrið haft mikil áhrif á komandi kosningar.
„Ef það þarf að fresta kosningu, í einhverri kjördeild einhvers staðar á landinu, þá er ekki hægt að telja annars staðar og birta úrslitin,“ sagði Ari Karlsson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, í gærkvöldi.