Framkvæmdir að hefjast: Kosta 1,8 milljarða

Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar, Lovísa Eðvarðsdóttir, formaður nemendaráðs, Guðrún …
Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar, Lovísa Eðvarðsdóttir, formaður nemendaráðs, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari, Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tóku fyrstu skóflustungurnar að nýrri byggingu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Framkvæmdir eru að hefjast á 2.654 fermetra verknámsaðstöðu fyrir húsasmíði, rafvirkjun og listgreinar við Fjölbrautaskólann í Breiðholti (FB).

Verktakafyrirtækið Eykt annast framkvæmdina. Kostnaður er 1,8 milljarðar króna og skiptist milli ríkis (60%) og borgar (40%), að því er fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Mennta- og barnamálaráðherra, borgarstjóri, skólameistari, formaður nemendaráðs og framkvæmdaraðili tóku fyrstu skóflustungur við hátíðlega athöfn með nemendum og starfsfólki í dag.

Nýja viðbyggingin mun stórauka aðgang að starfs- og verknámi á höfuðborgarsvæðinu og meira en tvöfalda starfsnámsaðstöðu FB, segi í tilkynningunni.

Elsti fjölbrautarskóli landsins

„Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er elsti fjölbrautaskóli landsins, stofnaður 1975. Stefna skólans er að leggja jafna áhersla á bók-, list- og verknám og mæta þannig námsþörfum og áhugasviði ólíkra nemenda.

Fjöldi nemenda stundar nám í húsasmíði (332) og rafvirkjun (412) við FB jafnt í dagskóla sem kvöldskóla. Með flutningi rafvirkjadeildar í hið nýja húsnæði og stórbættri aðstöðu fyrir kennslu í húsasmíði og myndlist verður stuðlað að frjóu samlífi verknáms og listnáms í skólanum þar sem kennsla ungmenna fer fram á daginn og kennsla fullorðinna á kvöldin,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert