Lögreglan á Suðurnesjum varar ökumenn og gangandi vegfarendur á Reykjanesskaga við mikilli hálku sem hefur myndast á vegum og göngustígum vegna frosts í jörðu og rigningar.
Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Facebook.
Eru allir hvattir til að fara varlega og sýna aðgát.