Marinn, bólginn og með skurð á enni eftir árás

Maðurinn sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild.
Maðurinn sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðist var á mann við verslunar- og þjónustukjarnann við Smáratorg í Kópavogi í gærkvöld. Maðurinn sem fyrir árásinni varð kom á lögreglustöðina í Kópavogi og var viðkomandi fluttur á slysadeild.

Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að tveir menn hafi ráðist að manninum en ekki sé vitað að svo stöddu hverjir árásarmennirnir eru.

Maðurinn sem fyrir árásinni varð hlut skurð á enni og var marinn á bólginn á líkamanum og segir Sigrún að hann hafi verið fluttur á slysadeild til skoðunar. Hún segir að málið sé til rannsóknar hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert