Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist hafa átt gott símtal við Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta, í gær. Trump kvaðst þar sérstaklega áhugasamur um Ísland, bæði sem ferðamannastað og um sögu og menningu landsins.
Frá þessu greinir forsætisráðherrann í færslu á Facebook en forsætisráðuneytið segir einnig frá símtalinu í tilkynningu. Þjóðarleiðtogarnir ræddu samskipti ríkjanna, viðskipti og öryggis- og varnarsamstarf
„[É]g lagði áherslu á vináttu ríkjanna og viðskipti, en Bandaríkin eru okkar stærsta einstaka viðskiptaland fyrir íslenskar útflutningsvörur,“ skrifar Bjarni en hann hitti Trump síðast á leiðtogafundi NATO árið 2017.
Þá hafi Bjarni sérstaklega nefnt mikilvægi þess að halda í samband ríkjanna og dýpka viðskipti þeirra enn frekar.
„Ræddum einnig Atlantshafsbandalagið, mikilvægi þess fyrir öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og loftrýmisgæsluna. Sömuleiðis mikilvægi áframhaldandi öflugs stuðnings við varnir Úkraínu og leiðina til langvarandi friðar,“ bætir Bjarni við.
Innrásin í Úkraínu er nú á sínu þriðja ári og sigur Trumps hefur stefnt framtíð stríðsins í ákveðna óvissu þar sem hann hefur ítrekað gagnrýnt stuðning Bandaríkjamanna við Úkraínu.
„Ég nefndi við hann vel heppnaða alþjóðlega fundi hér á landi, bæði undanfarin ár á viðburðum eins og leiðtogafundi Evrópuráðsins, en sömuleiðis lengra aftur - viðburði á borð við fundinn í Höfða 1986,“ skrifar Bjarni enn fremur en tekur fram að þeir Trump hefðu sammælst um að Ísland væri góður vettvangur slíkra funda.
Bjarni skrifar að lokum:
„Trump var sérstaklega áhugasamur um Ísland, bæði sem ferðamannastað og um sögu og menningu okkar. Hann bað fyrir góðum kveðjum til íslensku þjóðarinnar.“