Ekki aðhafst í meintu njósnamáli

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra, og Jón Gunnarsson, þingmaður …
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra, og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en maður sem villti á sér heimildir ræddi hvalveiðar við son Jóns á hótelherbergi í Reykjavík og meintan tilgang starfa Jóns í matvælaráðuneytinu. Samsett mynd

Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur ekki ástæðu til að lögregluyfirvöld aðhafist í hlerunarmáli ísraelska njósnafyrirtækisins Black Cube, sem starfrækt er af fyrrverandi starfsmönnum ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad, og gerði að sögn Jóns Gunnarssonar, alþingismanns Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, upptöku af samtali sonar hans við mann sem villti á sér heimildir.

Þetta staðfestir Helena Rós Sturludóttir upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra við mbl.is.

Eins og mbl.is hefur fjallað um gaf maðurinn, sem gerði upptökuna, sig út fyrir að vera fjárfestir og hafði samband við son Jóns, sem er fasteignasali. Kvaðst hann vilja kaupa ákveðnar eignir á Íslandi og fundaði um það með syninum á hótelherbergi í Reykjavík.

Aðstoðarmenn hafi ekki slíkar heimildir

Samtalið tók hins vegar fyrr en varði að snúast um hvalveiðar og skrifaði Jón síðar um það á Facebook, eftir að upptökunni hafði verið dreift til íslenskra fjölmiðla, að haft væri eftir syni hans að hann (Jón) hefði tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið og gefa þar út leyfi til hvalveiða.

„Um þetta hef­ur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálf­sögðu enga stoð í raun­veru­leik­an­um. Þar þarf ekki að nefna annað en að lög­um sam­kvæmt hafa aðstoðar­menn eng­ar heim­ild­ir til að taka stjórn­sýslu­ákv­arðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi,“ skrifaði Jón sem gerður var tímabundið að aðstoðarmanni Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í matvælaráðuneytinu.

Sór Bjarni það af sér í viðtali við mbl.is 12. nóvember að um einhvers konar hrossakaup væri að ræða með stöðu Jón í matvælaráðuneytinu.

„Það var auðvitað op­in­bert að Jón var feng­inn til þess að vera aðstoðarmaður­inn minn í ráðuneyt­inu og það mál snýst ekki um neitt annað en ná­kvæm­lega það að hann er að veita mér liðsinni þenn­an tíma sem ég ber ábyrgð á mat­vælaráðuneyt­inu í starfs­stjórn. Það ætti að vera öll­um ljóst að ég hef beðið hann um að gera það og því fylgja eng­in hrossa­kaup um eitt eða neitt. Allt annað er ekk­ert nema hug­ar­burður,“ sagði Bjarni.

Áhrif á stjórnmál á Íslandi

Þá ræddi Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur við mbl.is sama dag og Bjarni og kvaðst helst halda að hvalveiða- eða náttúruverndarsamtök með digra sjóði stæðu að baki meintum njósnum Black Cube.

„Mér finnst lík­legt að mesti kraft­ur­inn hafi verið sett­ur í þetta þegar stjórn­in féll og Jón var sett­ur inn í mat­vælaráðuneytið. Þá hlýt­ur ein­hvern veg­inn kraft­ur­inn að koma fram. Vafa­lítið til þess að grafa und­an þess­ari ákvörðun með ein­hverj­um hætti, enda er búið að koma þess­ari upp­töku á fram­færi við fjöl­miðla og rúm­lega tvær vik­ur í kosn­ing­ar.

Að koma í veg fyr­ir þessa ákvörðun, það hlýt­ur að vera mark­miðið og ég býst við því að það muni tak­ast því að nú eru hend­ur manna miklu bundn­ari,“ sagði Helgi og bæt­ti við:

„Þá hef­ur þess­um aðilum tek­ist ætl­un­ar­verkið sitt, að hafa áhrif á stjórn­mál á Íslandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert