Alþingi samþykkti nýverið breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um 50%.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands en þar segir að atburðirnir, sem átt hafa sér stað á Reykjanesskaga undanfarið, hafa haft veruleg áhrif á fjárhagslega stöðu NTÍ.
„Stofnunin þarf á hverjum tíma að eiga fjármuni til að greiða bætur vegna tjóns á húseignum, innbúi og öðru lausafé sem vátryggt er hjá NTÍ,“ segir í tilkynningunni.
Heimild til hækkunar á iðgjöldum NTÍ verður nýtt og frá og með 1. janúar 2025 og verða þau innheimt með 50% álagi samhliða brunatryggingariðgjöldum. Iðgjald fyrir húseignir, innbú og annað lausafé fer úr 0,025% í 0,0375% af vátryggingarfjárhæð.
„Sem dæmi um áhrif þessara breytinga mun iðgjald til NTÍ af 80 milljón króna eign hækka úr kr. 20.000 á ári í kr. 30.000 á ári og iðgjald af innbústryggingu á 20 milljón króna innbúi mun hækka úr kr. 5.000 í kr. 7.500 á ári,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Náttúruhamfaratrygging Íslands er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að vátryggja húseignir og brunatryggt lausafé, þ.m.t. innbú, gegn tjóni af af völdum jarðskjálfta, eldgosa, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.