Iðgjald hækkar um 50% til NTÍ

Atburðirnir sem átt hafa sér stað á Reykjanesi undanfarið, hafa …
Atburðirnir sem átt hafa sér stað á Reykjanesi undanfarið, hafa haft veruleg áhrif á fjárhagslega stöðu NTÍ. mbl.is/Eggert

Alþingi samþykkti nýverið breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um 50%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands en þar segir að atburðirnir, sem átt hafa sér stað á Reykjanesskaga undanfarið, hafa haft veruleg áhrif á fjárhagslega stöðu NTÍ.

„Stofnunin þarf á hverjum tíma að eiga fjármuni til að greiða bætur vegna tjóns á húseignum, innbúi og öðru lausafé sem vátryggt er hjá NTÍ,“ segir í tilkynningunni.

Heimild til hækkunar á iðgjöldum NTÍ verður nýtt og frá og með 1. janúar 2025 og verða þau innheimt með 50% álagi samhliða brunatryggingariðgjöldum. Iðgjald fyrir húseignir, innbú og annað lausafé fer úr 0,025% í 0,0375% af vátryggingarfjárhæð. 

„Sem dæmi um áhrif þessara breytinga mun iðgjald til NTÍ af 80 milljón króna eign hækka úr kr. 20.000 á ári í kr. 30.000 á ári og iðgjald af innbústryggingu á 20 milljón króna innbúi mun hækka úr kr. 5.000 í kr. 7.500 á ári,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Náttúruhamfaratrygging Íslands er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að vátryggja húseignir og brunatryggt lausafé, þ.m.t. innbú, gegn tjóni af af völdum jarðskjálfta, eldgosa, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka