Jafn kraftur í eldgosinu

Eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni.
Eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni hefur haldið mjög jöfnum krafti í nótt og gosórói hefur sömuleiðis haldist mjög stöðugur síðasta sólarhring.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.

Hraunið flæðir að mestu til austurs í átt að Fagradalsfjalli.

Samkvæmt gasdreifingarlíkani má gera ráð fyrir að mengun frá gosstöðvunum berist til höfuðborgarsvæðisins í dag.

Hér má sjá gasdreifingarspánna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert