Tilnefningar til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2024 voru kynntar í Eddu nú á fjórða tímanum. Alls voru tuttugu bækur tilnefndar eða fimm í hverjum flokki.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhendir bæði verðlaun á Bessastöðum á nýju ári. Formenn dómnefndanna fjögurra, Björn Teitsson, Kristín Ásta Ólafsdóttir, Unnar Geir Unnarsson og Viðar Eggertsson munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk, sem Félag íslenskra bókaútgefenda (FÍBÚT) kostar. Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er því í 36. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna.
Matthías Rúnar Sigurðsson hannaði nýjan koparsteyptan verðlaunagrip, hrafninn Blæng, sem veittur var í fyrsta sinn í upphafi þessa árs til verðlaunahafa ársins 2023.
Félag íslenskra bókaútgefenda gerði samkomulag við Íslenska glæpafélagið árið 2022 um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins. Umsagnir dómnefnda í heild má finna á vefnum mbl.is.
Tilnefningar til Blóðdropans
Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans í stafrófsröð bókartitla:
- Óskar Guðmundsson fyrir Brúðumeistarinn sem Storytel gefur út. „Vel uppbyggð saga þar sem atburðir úr fortíðinni varpa dökkum skugga á nútímann. Sögufléttan er snjöll og framvindan traust, þar sem hver vendipunktur styrkir heildina. Spennan er óslitin allt til loka, og höfundi tekst listilega að viðhalda leyndardómnum sem heldur lesandanum í heljargreipum.“
- Stefán Máni fyrir Dauðinn einn var vitni sem Sögur útgáfa gefa út. „Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson stendur frammi fyrir óljósri en ógnandi hótun í hrífandi glæpasögu sem þróast í óvænta spennu með hasar og hraðri framvindu. Frásagnarstíllinn er sjónrænn og áhrifaríkur, með vel útfærðri sögufléttu sem heldur lesandanum föstum í spennu allt til loka.“
- Eva Björg Ægisdóttir fyrir Kvöldið sem hún hvarf sem Veröld gefur út. „Spennandi bók þar sem lögreglukonan Elma tekst á við flókið og marglaga sakamál. Glæpasagan fangar lesandann með vel útfærðri ráðgátu og djúpri persónusköpun sem dregur fram mannlega þætti í hörðum aðstæðum. Höfundurinn lýsir heimi sem er þrunginn óvissu og spennu, þar sem óvæntir vendipunktar halda lesandanum á tánum frá fyrstu síðu til hinnar síðustu.“
- Ragnheiður Gestsdóttir fyrir Týndur sem Björt bókaútgáfa gefur út. „Vel heppnuð og spennandi saga um lítinn dreng sem lifir í heimi ofbeldis í Reykjavík. Höfundi tekst vel að lýsa ógnandi umhverfi en þar leynist einnig góðvild og manngæska. Rannsókn lögreglukonunnar Hönnu Maríu er leidd áfram af næmi og skarpskyggni, og spennan helst óslitin allt til síðustu blaðsíðu.“
- Steindór Ívarsson fyrir Völundur sem Storytel og Sögur útgáfa gefa út. „Áhugaverð og spennandi frásögn af óhugnanlegum atburðum sem gerast um miðja síðustu öld en enduróma inn í samtímann. Höfundur dregur fram sálarangist útskúfaðra og tengir nútímaviðburði á listilegan hátt við myrk illvirki fortíðarinnar, í áhrifaríkri og hugvitsamlega uppbyggðri sögu sem heldur lesandanum hugföngnum til enda.“
Dómnefnd skipuðu Ásrún Matthíasdóttir, Mjöll Snæsdóttir og Unnar Geir Unnarsson, formaður dómnefndar.
Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka
Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka:
- Hildur Knútsdóttir fyrir Kasia og Magdalena sem JPV útgáfa gefur út. „Sterk og hrífandi ástarsaga þar sem ungmenni takast á við erfiðar heimilisaðstæður sem fléttast saman við raunveruleika sem getur verið bæði flókinn og hættulegur.“
- Embla Bachmann og Blær Guðmundsdóttir myndhöfundur fyrir Kærókeppnin sem Bókabeitan gefur út. „Hröð og spennandi saga full af fjöri og húmor sem fjallar um spaugilegar hliðar samkeppninar um fyrsta sambandið og hversu mikilvæg vináttan er.“
- Sigrún Eldjárn fyrir Sigrún í safninu sem Mál og menning gefur út. „Fróðlegt og forvitnilegt ferðalag um Þjóðminjasafn Íslands, séð með augum barns um æskustöðvar sem eiga sér engan líka. Lesandinn fær innsýn í lífið á safninu og í gegnum einstakar myndir og texta lifnar það við og vekur áhuga ungra lesenda á íslenskri sögu og menningu.“
- Rán Flygernring fyrir Tjörnin sem Angústúra gefur út. „Hugljúf og lærdómsrík saga sem snertir á málefnum eins og vináttu, samvinnu og umhverfi og hvað getur gerst þegar eitthvað fer úrskeiðis eða ekki verður lengur ráðið við aðstæður. Hinn einstaki myndheimur bókarinnar styrkir söguna og á stundum tala myndirnar sínu máli og gera texta óþarfan.“
- Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni myndhöfundur fyrir Vísindalæsi 5 – Kúkur, piss og prump sem JPV útgáfa gefur út. „Fræðandi og skemmtileg bók um viðfangsefni sem við þekkjum öll en lítið er rætt um. Höfundi tekst með hnittnum og hispurslausum hætti að fræða lesandann um kunnugleg en viðkvæm málefni án þess að það verði vandræðalegt eða leiðinlegt auk þess að koma fram með áhugaverðan og oft skrítinn fróðleik.“
Dómnefnd skipuðu Einar Eysteinsson, Kristín Ásta Ólafsdóttir, formaður dómnefndar og Sigríður Wöhler.
Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis
Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:
- Guðjón Friðriksson fyrir Börn í Reykjavík sem Mál og menning gefur út. „Vandað og tímabært verk sem veitir innsýn í hvernig þróun samfélagsins hafði áhrif á aðbúnað, menntun og lífshætti barna og hvernig þau öðluðust nýja stöðu sem fullgildir þjóðfélagsþegnar í gegnum þessar breytingar. Fallegar myndir bókarinnar gefa aukin hughrif og gera bókina aðgengilega fyrir fleiri aldurshópa.“
- Ingibjörg Björnsdóttir fyrir Saga listdans á Íslandi sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. „Glæsilegt og áhugavert verk þar sem höfundur miðlar af mikilli þekkingu og innsýn sögu þessarar fallegu og mikilvægu listgreinar á Íslandi, allt frá upphafi hennar. Þróun hennar í áranna rás er lýst og hvernig henni óx ásmegin fyrir tilverknað þeirra sem ruddu brautina af framsýni, listrænum metnaði og hugrekki.“
- Þórir Óskarsson fyrir Svipur brotanna – Líf og list Bjarna Thorarensen sem Hið íslenska bókmenntafélag. „Vel unnið og áferðarfallegt verk þar sem feikilegur fróðleikur er saman dreginn og settur fram á skýran og áhugaverðan hátt um þetta margslungna höfuðskáld okkar Íslendinga sem að mörgu leyti var á undan sinni samtíð. Verkið gefur einstaka sýn inn í líf hans og skoðanir og víðfeðm áhrif hans á mörgum sviðum þjóðfélagsins og gefur góðan vitnisburð um pólitískan og bókmenntalegan hugsunarhátt öndverðrar 19. aldar.“
- Anna Dröfn Ágústsdóttir fyrir Óli K. sem Angústúra gefur út. „Fallegt verk um framsýnan frumkvöðul í þróun fjölmiðla á Íslandi. Ljósmyndir Óla K. voru áhrifamiklar og spegluðu samtímann, með bæði næmni listamannsins og nákvæmni fréttamannsins. Heimildavinna og texti höfundar gefa myndunum aukið vægi og setja sögu Íslands á 20. öld, hversdagslífs jafnt sem stórviðburða, í mikilvægt samhengi.“
- Árni Heimir Ingólfsson fyrir Tónar útlaganna – Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. „Einstakt verk um einstaka listamenn, sem lögðu öðrum fremur grunninn að því tónlistarlífi sem við njótum í dag á Íslandi. Ástríða höfundar fyrir viðfangsefninu er áþreifanleg, sem mikil og metnaðarfull heimildavinna ber vitni um. Verk sem á stöðugt erindi við okkur sem menningarþjóð og um leið áminning um mikilvægi og ávinning þess að taka vel á móti fólki sem þarf á aðstoð að halda.“
Dómnefnd skipuðu Björn Teitsson, formaður dómnefndar, Kristín Ýr Pétursdóttir og Þorvaldur Sigurðsson.
Tilnefningar í flokki skáldverka
Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki skáldverka:
- Arnaldur Indriðason fyrir Ferðalok sem Vaka Helgafell gefur út. „Einstaklega vel unnin söguleg skáldsaga sem dregur upp nýja og ferska sýn af skáldinu kunna. Saman við ljóð Jónasar og síðustu daga fléttast minningabrot úr fortíð hans í meistaralega vel skrifuðum texta. Léttur og fljótandi stíll málar upp mynd sem lætur engan ósnortinn.“
- Jón Kalman Stefánsson fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún sem Benedikt bókaútgáfa gefur út. „Sagt frá magnþrungnum atburðum í sögu þjóðarinnar í upphafi 17. aldar með nýjum hætti og þeir túlkaðir með hliðsjón af hugmyndum vísindamanna þess tíma um heiminn. Lifandi og frumleg persónusköpun byggir á þekktum sögulegum persónum. Leiftrandi frásagnargleði með öguðum en liprum texta og sterkum skírskotunum til samtímans.“
- Gerður Kristný fyrir Jarðljós sem Mál og menning gefur út. „Áleitin ljóð sem fjalla um mannleg örlög í nútíð og fortíð þar sem grimm alvara og lævís kímni vegast á. Í kaldhömruðum textanum er hljómgaldur og taktur tungunnar nýttur til fulls og meitlað myndmál túlkar heitar tilfinningar.“
- Birgitta Björg Guðmarsdóttir fyrir Moldin heit sem Drápa gefur út.“Með léttum og hrífandi ritma er lesendum boðið upp í dans. Smám saman brýst út tilfinningaþrungin frásögn í listilega uppbyggðri skáldsögu. Listrænn en jafnframt aðgengilegur texti sem ætti að höfða til allra.“
- Kristín Ómarsdóttir fyrir Móðurást: Draumþing sem Mál og menning gefur út. „Sögulegur frásagnagaldur sem hverfist um unga stúlku sem verður að konu á sumarsólstöðum. Nýstárlegur og óvenjulegur frásagnarstíll. Hrífandi fíngerður og ljóðrænn glitvefur ofinn af meistara höndum.“
Dómnefnd skipuðu Gunnlaugur Ástgeirsson, Kris Gunnars og Viðar Eggertsson, formaður dómnefndar.
Tilkynnt var um tilnefningar ársins í Eddu - húsi íslenskunnar. Verðlaunin verða afhent snemma á nýju ári