Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir endurnýjunarkostnað við Seðlabankann í samræmi við tilboð og að ekki sé um framúrkeyrslu að ræða eins og greint var frá í Morgunblaðinu í morgun.
Í tilkynningu frá seðlabankastjóra segir hann að raunkostnaður auk verðbóta vegna verksins sé nú tæpir 3,2 milljarðar við framkvæmdir á öllum fimm hæðum og viðbyggingu. Tilboðsverð hafi hins vegar verið tæplega 3,1 milljarðar. Þar muni um 4% sem verði að engu með tilliti til verðbóta.
Tilkynning bankans, sem undirrituð er af seðlabankastjóra má sjá í heild sinni hér að neðan:
„Endurnýjunarkostnaður við Seðlabankann í samræmi við tilboð
Seðlabanki Íslands gerir athugasemdir við framsetningu á fréttaflutningi um kostnað við endurnýjun og lagfæringar á húsnæði Seðlabankans við Kalkofnsveg. Eins og áður hefur komið fram var ákveðið að fara í framkvæmdir fyrir tæpum hálfum áratug vegna nauðsynlegs viðhalds og sameiningar við Fjármálaeftirlitið. Líkt og fram kemur í svari sem birt var á vef Alþingis í vikunni er framkvæmdakostnaðurinn nánast í samræmi við þá samninga sem gerðir voru að loknum útboðum.
Fyrsti fasi verkefnisins tókst einkar vel. Honum er að fullu lokið og var raunkostnaður umfram tilboð óverulegur, eða um 2%. Nú stendur yfir framkvæmd við alrými Seðlabankans og er því verki ólokið. Tilboð í verkið nam 1.926 milljónum króna og sem stendur er raunkostnaður þess 1.802 milljónir króna.
Raunkostnaður auk verðbóta er tæpir 3,2 milljarðar króna við fimm hæðir og viðbyggingu. Tilboðsverð var tæpir 3,1 milljarðar króna. Á þessum tölum er tæplega fjögurra prósenta munur sem verður að engu að teknu tilliti til verðbóta.“