Leiðtogar stjórnmálaflokkanna mætast í kappræðum í beinni útsendingu í Hádegismóum í dag klukkan 14.
Tekist er á um stóru málefnin þar sem frambjóðendum er gefinn kostur á að gera grein fyrir áherslumálum flokka sinna og freista þess að afla sér aukins fylgis í aðdraganda kosninga á laugardag.
Niðurstöður nýrrar könnunar Prósents fyrir Morgunblaðið og mbl.is voru kynntar í upphafi þáttar.
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra kappræðunum, sem er skipt í tvær umferðir og er streymt beint hér að neðan.