Hraun úr eldgosinu við Sundhnúkagígaröðina rennur nú nær eingöngu til austurs og norðausturs, að og meðfram Fagradalsfjalli.
Virknin hefur verið stöðug í nótt og gosórói líka.
Gasdreifingarspá gerir ráð fyrir norðaustanátt og að gasmengun geti því verið viðvarandi í Grindavík í dag.