Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í ósk um að breyta efri hæðum Landsbankahússins á Laugavegi 77 úr skrifstofum í íbúðir. Húsið er fjórar hæðir auk þakhæðar.
Hins vegar fékkst ekki heimild til að breyta hæðunum í hótelíbúðir í skammtímaleigu. Það er ekki heimilt á þessu svæði, miðborgarkjarna M1, samkvæmt gildandi aðalskipulagi.
Eins og nafnið gefur til kynna var Landsbankinn með starfsemi í húsinu um langt árabil. Útibú bankans var á neðstu hæðinni og skrifstofur á þeim efri. Nú hefur bankinn fækkað bankaútibúum sínum og eru þau nú sex á höfuðborgarsvæðinu.
Meginstarfsemi bankans hefur verið sameinuð á einum stað í nýju bankahúsi við Reykjastræti í miðborginni.
Í dag eru starfrækt á jarðhæðinni fyrirtækin Penninn Eymundsson kaffihús, herrafataverslunin Karlmenn og veitingahúsið Eiriksson brasserie. Á efri hæðum eru nokkur fyrirtæki, t.d. Kerecis hf.
Færst hefur í vöxt á undanförnum árum að skrifstofubyggingum í Reykjavík sé breytt í íbúðarhús. Nú er röðin komin að Laugavegi 77.
Umfjöllunina má nálgast í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.