Morðmál í Breiðholti: Farið fram á áframhaldandi varðhald

Rannsókn lögreglu miðar vel áfram.
Rannsókn lögreglu miðar vel áfram. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Farið verður fram á framlengingu gæsluvarðhalds yfir karlmanni í tengslum við andlát konu á sjötugsaldri í Breiðholti í síðasta mánuði.

Þetta staðfestir Eiríkur Valberg, fulltrúi í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is en maðurinn sem er grunaður um að hafa verið valdur að dauða konunnar er sonur hennar. Gæsluvarðhald yfir honum á að renna út í dag.

„Rannsókninni miðar vel áfram og við erum með nokkuð góða mynd af því sem þarna átti sér stað. Það er beðið eftir krufningarskýrslu, DNA sýnum og öðrum sérfræðigögnum,“ segir Eiríkur við mbl.is.

Lögregla fékk tilkynningu um málið um miðnætti 23. október síðastliðinn. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti voru strax hafnar endurlífgunartilraunir. Þær báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin.

Ákærður fyrir tilraun til manndráps árið 2006

Sonur konunnar var nýsloppinn úr fangelsi eftir að afplánað dóm fyrir ofbeldi gegn móður sinni. Þá var hann ákærður árið 2006 fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið föður sinn í bakið.

Hann var metinn ósakhæfur og fram kom í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur að á verknaðastundu hafi hann verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum. Honum var gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert