Störf og föst laun stórmeistara lögð niður

Stórmeistarar á launum frá ríkinu njóta forgangs til styrkja árið …
Stórmeistarar á launum frá ríkinu njóta forgangs til styrkja árið 2025. Ljósmynd/Colourbox

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um afrekssjóð í skák. Reglugerðin tilgreinir með hvaða hætti styrkveitingar til skákmanna munu fara fram.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir, að ný lög um skák taki gildi 1. febrúar 2025.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritar reglugerð um afrekssjóð …
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritar reglugerð um afrekssjóð í skák. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Styrkir til stórmeistara og til framúrskarandi skákmanna

„Þá verða störf og föst laun stórmeistara lögð niður. Auk styrkja til stórmeistara verður einnig hægt að úthluta styrkjum til framúrskarandi eða efnilegra skákmanna úr nýjum afrekssjóði. Stórmeistarar á launum frá ríkinu njóta forgangs til styrkja árið 2025.

Markmiðið með reglugerðinni er að búa afreksskákmönnum og efnilegum skákmönnum fjárhagslega og faglega umgjörð til að hámarka árangur sinn í skák,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að auglýst sé árlega eftir umsóknum í afrekssjóð út frá stefnu og skilyrðum sjóðsins. Stjórn sjóðsins meti umsóknir og leggi fram tillögur að úthlutun til ráðherra. Miðað sé við að úthlutun styrkja sé tilkynnt fyrir 1. febrúar ár hvert.

Skipar þrjá fulltrúa í stjórn afrekssjóðs

Ráðherra skipar þrjá fulltrúa í stjórn afrekssjóðs í skák til þriggja ára í senn, tvo samkvæmt tilnefningum Skáksambands Íslands og einn án tilnefningar. Stjórn leggur fram tillögu til ráðherra um stefnu við úthlutun styrkja úr sjóðnum til þriggja ára í senn og um styrkveitingar úr sjóðnum, auk þess að fylgjast með því að skákmenn sem fá úthlutað úr sjóðnum fari að skilmálum, að því er ráðuneytið greinir frá. 

„Heimilt að gera þær kröfur til umsækjenda að þeir njóti ekki annarra launa eða greiðslna á því tímabili sem styrkurinn nær til og gera kröfu um endurgreiðslu ef ákvæðum styrktarsamnings er ekki fylgt. Til að bæta stöðu og auka möguleika kvenna í skák er heimilt að setja mismunandi skilyrði styrkveitinga fyrir kynin,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka