Dregið hefur verulega úr landsigi umhverfis Svartsengi á áttunda degi eldgossins á Sundhnúkagígaröðinni.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að þar sem breytingar á milli daga séu smávægilegar þurfi að skoða þróunina yfir nokkra daga til að meta hvort landris sé hafið á nýjan leik.
Áfram gýs úr einum gíg og hefur virkni í gosinu verið stöðug síðastliðinn sólarhring. Hraun rennur nú nær eingöngu til austurs og suðausturs, að og meðfram Fagradalsfjalli. Gosórói hefur verið stöðugur samhliða virkninni í gígnum.
Gasdreifingarspá gerir ráð fyrir norðaustan 10-15 m/s á Reykjanesi í dag og gasmengun berst því til suðvesturs í átt að Grindavík. Vind á að lægja í kvöld og þá gæti mengunar orðið vart víða á Reykjanesi. Á morgun á að bæta í vindinn úr norðaustri og þá berst gas aftur í átt að Grindavík. Sjá gasdreifingarspá hér.