Nýta frostið til framkvæmda við tjörnina

Á meðan framkvæmdir standa yfir í desembermánuði þarf að loka …
Á meðan framkvæmdir standa yfir í desembermánuði þarf að loka fyrir aðgengi gangandi að Tjörninni til móts við Fríkirkjuna. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í stóra hólmanum í Tjörninni eftir helgi en markmið framkvæmdanna er að styrkja fuglalífið á Tjörninni.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Stefnt er á að nýta frostakaflann fram undan til þess að fjarlægja efsta lagið af hólmanum og flytja efni út í hólmann á ísnum. Til þess að ljúka seinasta hluta framkvæmda þarf að bíða þangað til vorar á ný. Verklok eru áætluð í lok maí 2025.

Ætlað er að aðgerðirnar bæti varpland í hólmanum.
Ætlað er að aðgerðirnar bæti varpland í hólmanum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Bæta varpland

Farið verður í aðgerðir til þess að bæta varpland í hólmanum, fyrir til að mynda endur, og einnig verða bakkavarnir endurnýjaðar að ráðleggingum líffræðinga sem vaktað hafa lífríki Tjarnarinnar um árabil.

Á meðan framkvæmdir standa yfir í desembermánuði þarf að loka fyrir aðgengi gangandi að Tjörninni til móts við Fríkirkjuna og verða settar upp hjáleiðamerkingar.

Áður hefur verið farið í svipaðar framkvæmdir í Þorfinnstjörn með góðum árangri þar sem kríuvarp hefur eflst merkjanlega.

Fjarlægja á efsta hluta núverandi yfirborðs af hólmanum, leggja út jarðvegsdúk, möl og jarðveg. Hluti hólmans verður þökulagður á ný. Það er gert til þess að draga úr sókn hvannar og annarra stórvaxinna tegunda sem draga úr gæðum varplands í hólmanum. Grjótkantur umhverfis hólmann verður endurhlaðinn til þess að draga úr rofi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka