Skólastarf fellur niður vegna mikils vatnsleka

Sunnulækjarskóli.
Sunnulækjarskóli. Ljósmynd/Árborg

Skólastarf í 5.-10. bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi fellur niður í dag vegna mikils vatnsleka í nótt.

Fram kemur í tilkynningu skólastjóra til foreldra og forráðamanna að bilun hefði orðið í hitaelementi á þaki skólans.

„Slökkvilið er að meta umfangið á hreinsun en ljóst er að við þurfum að fella niður skólastarf í 5.-10. bekk í dag vegna þessa,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka