Slökkviliðsmenn héldu á fund forsetamaka á Bessastöðum í morgun ásamt forstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, og afhentu honum nýjan reykskynjara.
1. desember er nefnilega ekki einungis fullveldisdagur Íslendinga heldur einnig dagur reykskynjarans.
Í tilefni dagsins, sem fellur á sunnudegi í ár, tók Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur, á móti slökkviliðsmönnum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Hermanni Jónassyni forstjóra HMS til að minna á mikilvægi reykskynjarans, sem bjarga fjölda mannslífa á ári hverju.
Reykskynjarinn er eitt mikilvægasta öryggistæki heimilisins og af því tilefni eru landsmenn hvattir til að huga að virkni sinna reykskynjara – í raun ódýrasta líftryggingin.
Slökkviliðsmenn ræddu við Björn um mikilvægi eldvarna á heimilum landsins, þar á meðal á Bessastöðum enda mikill menningararfur og saga sem standa þarf vörð um þar og í kring.
Mikilvægir punktar varðandi reykskynjara:
• Reykskynjarar eru nauðsynlegir í öllum rýmum heimilisins
• Mikilvægt er að staðsetja þá sem næst miðju lofts
• Prófið virkni reykskynjarans að lágmarki einu sinni á ári
• Mikilvægt er að allir þekki flóttaleiðir á sínu heimili og að þær séu greiðfærar
• Hafið slökkvitæki tiltækt á flóttaleiðinni