Kristrún: „Mér líður auðvitað gríðarlega vel“

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eyþór

„Mér líður auðvitað gríðarlega vel. Það er gaman að sjá að það er augljóslega vilji hjá þjóðinni um að sjá breytingar í hinu pólitíska landslagi.“

Þetta segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við mbl.is á kosningavöku flokksins í Kolaportinu í kvöld.

„Þetta eru bara fyrstu tölur, við erum bara hóflega með fæturna á jörðinni en ég er mjög stolt af því að sjá að framlag okkar sjálfboðaliða og frambjóðenda er að skila sér, að minnsta kosti í fyrstu tölum.“

Flokkurinn hefur hlotið 2.244 atkvæði og mælist með 19,8% í Suðurkjördæmi og Norðausturkjördæmi. Búið er að telja 11.442 atkvæði enn sem komið er.

Mikil fagnaðarlæti brutust út.
Mikil fagnaðarlæti brutust út. mbl.is/Eyþór

Fundið fyrir gríðarlegum stuðningi

Kemur þetta þér á óvart?

„Við höfum auðvitað fundið fyrir gríðarlegum stuðningi upp á síðkastið en það er auðvitað alltaf þannig að þetta er eina könnunin sem skiptir máli. Það gerist ýmislegt í aðdraganda kosninga. Þetta er eina könnunin sem skiptir máli.“

Ertu með einhver skilaboð til fólks inn í nóttina?

„Á þessum tímapunkti verðum við að taka því sem koma skal, þjóðin er búin að kjósa og nú þarf bara að telja en við erum að minnsta kosti tilbúin til þess að leiða breytingar ef það er vilji fyrir hendi en svo verður bara að sjá hvað kemur upp úr kössunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert